Dóróthea og Öskubuska heimsækja Akureyrarvöku

Dóróthea og Öskubuska heimsækja Akureyrarvöku

Skrúðhús Lystigarðs Akureyrar, , Akureyri Directions

Sat 29.08.2026 13:00

Dóróthea og Öskubuska heimsækja Akureyrarvöku

Dórothea og Öskubuska leiða okkur inn í ævintýraskóg fullan af töfrum og vináttu
Dóróthea úr Galdrakarlinum í Oz og Öskubuska leiða okkur inn í ævintýraskóg fullan af töfrum og vináttu. Þar hitta þær meðal annars góðu nornina, fuglahræðuna, pjáturkarlinn, ljónið, álfadís og systur Öskubusku – og heyra af Galdrakarlinum mikla í OZ. Í ferðalaginu komast þær að því að raunverulegur styrkur, hyggindi og kærleikur búa innra með okkur sjálfum. Sagan minnir okkur á mikilvægi góðmennsku, þrautseigju og æðruleysis. Við erum öll nákvæmlega eins og við eigum að vera – aldrei gefast upp þó að á móti blási.
 
 
Viðburðurinn er í boði Akureyrarvöku.
 

Performers