Sungið á Þingvöllum - Gjallandi

Sungið á Þingvöllum - Gjallandi

Þingvallakirkja, Þingvellir, 801 Þingvellir Directions

Sun 16.08.2026 16:00

Sungið verður í og við Þingvallakirkju. Gjallandi verður í þjóðbúningum og ef á þarf að halda verður sungið í kirkjunni.

Viðburðuinn hefst klukkan 16:00.

Sviðslistahópurinn Gjallandi var stofnaður sumarið 2025 af átta söngkonum sem allar stunduðu saman nám við söngdeild Listaháskóla Íslands.

Þær vilja skapa sér og öðrum ungum listamönnum fjölbreytt verkefni á sviði sviðslista. Sem sitt fyrsta verkefni, í júlí 2025, setti Gjallandi upp óperuna Suor Angelica eftir Giacomo Puccini við góðar undirtektir. Til þess hlutu þær styrk frá Hvatningasjóði ungra listamanna í Garðabæ og Menningarsjóði FÍH.

Annað verkefni hópsins voru hátíðartónleikar milli jóla og nýárs 2025 þar sem þær fluttu A Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten, í bland við íslensk verk fyrir kvennraddir og hörpu. Í júní síðastliðnum endurtóku þær svo leikinn og fluttu Suor Angelica á Sönghátíð í Hafnarborg. Næsta verkefni hópsins eru tónleikarnir Dætur Evu — Systur Maríu, á 15:15 tónleikaröðinni í Fella- og hólakirkju 22. ágúst næstkomandi.

Efnisskrá

 
 
Mína þá
Íslenskur tvísöngur
 
Þú álfu vorrar yngsta land
Lag: Sigfús Einarsson, texti Hannes Hafstein
 
Þó þú langförull legðir
Lag: Sigvaldi Kaldalóns, Stephan G. Stephanssen
 
Hver á sér fegra
Lag: Emil Thoroddsen, texti: Hulda
 
Tota pulcra es
Lag: Maurice Duruflé, texti: latneskur kirkjutexti
 
Salve Regina
Lag: Javier Busto, texti: latneskur kirkjutexti
 
Haustvísur til Maríu
Lag: Atli Heimir Sveinsson, texti: Einar Ólafur Sveinsson
 
Úr Hulduljóðum
Lag: Atli Heimir Sveinsson, texti: Jónas Hallgrímsson, útsetning: Hrafnkell Orri Egilsson
 
Söngur Dimmalimm
Lag: Atli Heimir Sveinsson, texti: Atli Már Árnason
 
Óskasteinar
Lag: ungverskt þjóðlag, texti: Hildigunnur Halldórsdóttir
 
Sofðu unga ástin mín
Lag: íslenskt þjóðlag / Jón Ásgeirsson, texti: Jóhann Sigurjónsson
 
Lysthúskvæði
Íslenskt þjóðlag / Eggert Ólafsson
 
Draumalandið
Lag: Sigfús Einarsson, texti: Guðmundur Magnússon, útsetning: Þorvaldur Örn Davíðsson
Sýna minna

Performers