Howie B & Hiraki Sawa: 3 Sticks ásamt Tech x Copper
Gamla Bíó, Ingólfsstæti 2a, 101 Reykjavík Directions
Fri 16.10.2026 21:00
Howie B & Hiraki Sawa: 3 Sticks ásamt Tech x Copper
Hinn goðsagnakenndi breski tónlistarmaður og upptökustjóri Howie B heldur tónleika í Gamla Bíó þann 16. október næstkomandi. Honum til halds og trausts verður Japanski myndlistarmaðurinn Hiraki Sawa sem stýrir lifandi myndefni á tónleikunum. Saman kalla þeir sig 3 Sticks.
Á tónleikunum spila þeir nýtt efni í bland við eldri lög Howie B og auk þess er mikið lagt upp úr lifandi spuna. Tónleikarnir verða einstakt hljóð- og sjónarspil þar sem myndbandalist Hiraki bregst í rauntíma við tónlist Howie á sviðinu.
Raftónlistartvíeykið Tech x Copper opnar kvöldið og flytur nýja tónlist þar sem lifandi slagverk, ambient textúrar og spuni verða í forgrunni.
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri að sjá Howie B, Hiraki Sawa og Tech x Copper í Gamla Bíó!
Húsið opnar: 20:00 // Takmarkað magn miða í boði.
Miðaverð: 7.900 kr.
Um listafólkið:
Howie B (UK)
Howie B hefur verið lykilmaður í alþjóðlegu raftónlistarsenunni í rúma þrjá áratugi allt frá því hann kvað sér fyrst hljóðs í upprisu trip-hop tónlistarinnar í Bristol á tíunda áratugnum. Þekktastur er hann fyrir störf sín sem upptökustjóri og pródúsent fyrir listafólk á borð við U2, Björk, Massive Attack, Tricky og Brian Eno. Howie hefur gefið út mikið af eigin tónlist og komið fram á tónlistarhátíðum og tónleikum um allan heim. Þá hefur hann endurhljóðblandað tónlist ótal listamanna, ma. New Order og Serge Gainsbourg.
Hiraki Sawa (JP)
Hiraki Sawa er heimsþekktur japanskur hljóð- og myndlistarmaður, fæddur í Kanazawa í Japan en búsettur í London. Hann vinnur innsetningar á mörkum tónlistar, kvikmynda og myndlistar þar sem hann notar blandaða miðla, mest hreyfimyndir í bland við skúlptúra og teikningar. Hiraki hefur sýnt í mörgum virtustu söfnum heims, þar á meðal einkasýningu í Asia Society New York og Mori Art Museum í Tókýó. Þá hefur hann tekið þátt í stórum alþjóðlegum sýningum, m.a. í Lyon og Taipei.
Tech x Copper (IS)
Tech x Copper er tilraunakennt samstarfsverkefni raftónlistarmannsins og pródúsentsins Leifs Björnssonar og slagverksleikarans og tónskáldsins Sólrúnar Mjallar Kjartansdóttur. Verkefnið byggir á skissum og hugmyndum þar sem lifandi slagverk, ambient textúrar og spuni renna saman. Tónlistin hefur mótast í hljóðveri og á sviði en útgáfa á nýrri tónlist í samstarfi við Swedish Columbia útgáfuna er í pípunum. Leifur var áður meðlimur í Low Roar og hefur hlotið tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir upptökustjórn, og Sólrún er einn eftirsóttasti trommuleikari landsins (FLOTT, Una Torfa).
Það er 20 ára aldurstakmark á þennan viðburð.
Performers
-
tech x copper
An experimental collaboration between Leifur Björnsson and Sólrún Mjöll exploring rhythm, memory, and fractured experience.