Þjálfun miðilshæfileikans með Ásthildi Sumarliða
Tónastöðin, Skipholt 50D, 105 Reykjavík Directions
Fri 07.08.2026 10:00
Vinsæla námskeiðið Þjálfun miðilshæfileikans með Ásthildi Sumarliða verður hjá okkur helgina 8.-9 ágúst 2026.
Á þessu helgarnámskeiði mun Ásthildur Sumarliðadóttir kenna einfalda tækni sem þú getur notað þegar þú vinnur með þinn andlega hæfileika. Þetta námskeið er bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Þetta námskeið er gott fyrir þá sem hafa áhuga á að efla sinn miðilshæfileika og læra að vinna með hann á einfaldan og auðveldan hátt.
Kennsluaðferðina hefur Ásthildur þróað með sjálfri sér og hefur aðferðin reynst mörgum vel.„Ég trúi því að besta þjálfunin sé að gera æfingar sem efla þína næmni í að sjá, heyra og finna“ segir Ásthildur.
Ásthildur Sumarliðadóttir er Reikimeistari, OPJ þerapisti og hefur hún unnið í gegnum tíðina með transheilun, spáð í spil, verið í markvissri transþjálfun síðan 2005 og þjálfun í vökumiðlun. Hún hefur farið á mörg trans/heilunar og miðilsnámskeið í hinum virta Arthur Findlay skóla í Bretlandi.
Námskeiðsgjald er 30.000 kr.
Námskeiðið er frá 10.00-16.00 báða daganna. Hádegishlé í klukkustund
Skráning á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130
Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13:00-16:00.
Performers
-
Ásthildur SumarliðaÁsthildur hefur alltaf verið næm og hún telur að lífið sjálft hafi á margan hátt stuðlað að þróun miðilshæfileika hennar. Lífsreynslan, tengsl við fólk, námskeið og margvíslegar upplifanir hafa fleytt henni áfram í andlegum þroska.
Ásthildur er sambands spámiðill, OPJ meðferðaraðili, reikimeistari og hún hefur verið að þjálfa sig sem transmiðil og unnið með transheilun.
Hún hefur haldið námskeiðin: Þjálfun miðilshæfileikans, Transheilunarnámsskeið og Spáð í spilin – þau gömlu góðu.
Ásthildur hefur haldið skyggnilýsingar hjá félaginu og einnig staðið fyrir heilunarhugleiðslustund til styrktar félaginu.
Markmið Ásthildar er að vinna af heiðarleika og að nýta vettvang alkærleikans fyrir sína vinnu.