Hekluð taska - námskeið

Hekluð taska - námskeið

Faxatorg - Faxafen (2. hæð), Faxafen 10, 108 Reykjavík Directions

Wed 02.09.2026 17:30

Verið hjartanlega velkomin á vinnustofu Flóðs & fjöru miðvikudaginn 2. september kl. 17:30-20:30. Öll velkomin, bæði þau sem kunna að hekla og þau sem eru byrjendur.

Á námskeiðinu heklum við litla tösku sem er til dæmis fullkomin sem verkefnataska á ferðinni og svo karfa þegar þú ert sest niður með þína handavinnu og kaffibollann. Hver þátttakandi fær efni í eina tösku, heklunál í stærð 8 og útprentaða uppskrift. Leiðbeinandi er Hera Sigurðardóttir, höfundur uppskriftarinnar og eigandi Flóðs & fjöru.

Allur efniviður er innifalinn í skráningargjaldinu sem er 16.900 kr.

Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.

Heilandi samverustund þar sem við tengjumst í gegnum handavinnunnana, spjallið og samveruna.

Performers