Uppskerudagar Skapandi sumarstarfa 2026: Photomapping Kópavogur
Mon 20.07.2026 17:30
Photomapping Kópavogur er ljósmynda- og heimildaverk eftir Eyrúnu Sigtryggsdóttur, listamanneskju í Skapandi sumarstörfum Kópavogs.
Verkið varpar nýju ljósi á sögu, stemningu og minningar sem tengjast ólíkum stöðum í Kópavogi með ljósmyndum, viðtölum og persónulegum frásögnum. Hluti verkefnisins verður settur upp sem pop-up sýningar víðs vegar um Kópavog yfir sumarið.
Á formlegri sýningaropnun verða einnig til sýnis "Sjóróar", listaverk í formi óróa sem eru unnir úr náttúruefnum sem safnað hefur verið við sjóinn, ásamt ljósmyndabókum sem gestir geta skoðað.
📅 Formleg opnun og móttaka: 20. júlí kl. 17:30
📍 Náttúrustofa Kópavogs, neðri hæð Bókasafns Kópavogs
📅 Sýning opin: 20.–24. júlí
Sýningin er hluti af Skapandi sumarstörfum Kópavogs 2026.
Performers
-
Molinn miðstöð unga fólksins💛 Molinn er notalegt og skapandi rými fyrir ungt fólk (16-25 ára) í Kópavogi.
🎤 Upptökustúdíó 🐉 D&D kvöld 🤝 Ráðgjöf frá Berginu Headspace 🎉 Viðburðir og smiðjur ☕ Öruggt samfélag
Komdu eins og þú ert. Öll velkomin ✨🫶🏳️⚧️🏳️🌈🌍💛✌️