Sumarkjóla- og Freyðivínshlaup Akureyri 2026
Kjarnaskógur, Birkimel, 600 Kjarnaskógur Directions
Thu 30.07.2026 17:00
HæææHóóóó!!
Sumarkjóla- og Freyðivínshlaupið er heldur betur á dagskrá og ætlum við að keyra verslunarmannahelgina í gang!
Sumarkjóla og Freyðivínshlaup verður haldið í Kjarnaskógi þann 30.Júlí kl 17.00 🍾✨️
-> 20. ára aldurstakmark er í hlaupið! <-
Nú er heldur betur rétti tíminn til þess að draga fram sumarkjólinn 👗 og/eða sumarfötin 🩳👕 sem þú hefur ekki náð að nota í sumar! 🌻
Við hittumst öll á planinu við Kjarnakot, eina sem þú þarft að taka með er ísköld 750ml flaska af freyðivíni (áfengt/óáfengt), grípa glas með og alls ekki gleyma góða skapinu! 🥂✨️
Hvetjum öll til þess að mæta, allir fara á sínum hraða! Labb, hlabb eða hlaup allt leyfilegt 🏃♀️🚶♀️💥
Hlaupaleiðin er sú sama og í fyrra
1 hringur ca 2.2km- Svo þetta á BARA að vera gaman!!
Auðvitað leyfilegt að fara lengra! :)
☀️ Nú hugsum við fallega til bestu okkar ☀️