Í fótspor berklasjúklinga með Einari Skúlasyni - Söguganga á 50 ára afmæli Garðabæjar
Vífilstaðir, Vífilsstaðavegur 9, 210 Garðabær Directions
Thu 27.08.2026 20:00
Einar Skúlason göngugarpur leiðir sögugöngu um Vífilsstaði og nágrenni í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar.
Á Berklahælinu á Vífilsstöðum var lagt mikið upp úr útivist og fersku lofti og þegar sjúklingar gátu var hvatt til gönguferða. Einar mun að einhverju leiti ganga í fótspor berklasjúklinga meðfram Vífilsstaðavatni og upp á Gunnhildi. Á leiðinni verða tekin nokkur stopp og fróðleiksmolum kastað á loft og samtal eiga sér stað um lífið á Berklahælinu. Gangan hefst við við aðalbílastæði Vífilsstaða kl. 20 og er 4-5 km á lengd og hækkun tæpir 100 metrar. Gera má ráð fyrir að gangan taki einn og hálfan tíma eða rúmlega það.
Þátttaka er ókeypis.