Sagnakveld Kómedíuleikhússins - júlí

Sagnakveld Kómedíuleikhússins - júlí

Kómedíuleikhúsið, Kómedíuleikhúsið, Haukadalur Directions

Sun 19.07.2026 20:00

Sagnakveld Kómedíuleikhússins er nýr viðburður í Sumarleikhúsi okkar. Boðið verður uppá eitt Sagnakveld í hverjum mánuði sumarsins og nú er komið að Sagnakveldi júlí mánaðar.

Sögutollur aðeins 3.000.- krónur

Miðasala á staðnum. Græni bar opinn og posi á staðnum.

Á Sagnakveldi Kómedíuleikhússins stíga þrír sagnamenn á svið en þó aðeins einn í einu. Hver sögumaður hefur 20 mínútur til að segja sína sögu. Ekki má nota skjávarpa eða önnur tæknitæki aðeins sögumaðurinn sjálfur og sagan hans alveg einsog í bastofunni hjá Gísla Súra í gamla daga. Söguefnið getur verið nánast hvað sem er og því verður þetta ávallt óvænt og söguleg stund.

Sagnamenn júlí mánaðar og söguefni þeirra eru:

Þórarinn Hannesson - Æskubrek á Bíldudal, leikir og dægradvöl barna fyrir tölvuöld.

Halla Signý Kristjánsdóttir - Segir af formæðrum sínum í Dýrafirði.

Peter Weiss - Segir all óvænta sögu.

Komum saman í sögudalnum Haukadal og njótum einstakra sagna í Haukadalsleikhúsinu.