Eiríkur Hreinn Helgason syngur

Eiríkur Hreinn Helgason syngur

Bústaðakirkja, Tunguvegur 25, 108 Reykjavík Directions

Sun 19.07.2026 20:00

Kvöldmessa fer fram í Bústaðakirkju sunnudaginn 19. júlí nk. kl. 20:00. Eiríkur Hreinn Helgason, barítón, syngur einsöng og leiðir almennan safnaðarsöng, ásamt Jónasi Þóri sem leikur á flygil. Séra Þorvaldur Víðisson flytur hugvekju og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. 
Kvöldmessurnar í Bústaðakirkju eru heimilislegar og hátíðlegar. 
Jesús segir í guðspjallatexta dagsins: Ég er lífsins brauð. 
Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í kvöldmessu í Bústaðakirkju. 

Performers