Tenórar í stuði - Tónleikar í Sólheimakirju

Tenórar í stuði - Tónleikar í Sólheimakirju

Sólheimakirkja, Sólheimum, 805 Sólheimar Directions

Sat 15.08.2026 14:00

Á laugardaginn endum við sumartónleika að Sólheimum með heimsókn þriggja tenóra sem munu þenja raddböndin og flytja fjölbreytt söngprógramm.

Tenórarnir eru:

Gunnar Björn Jónsson

Ólafur Magnússon og

Valur Steindórsson

Með þeim leikur á flygilinn Jónas Þórir.

Ókeypis aðgangur og öll velkomin 🌞

Við hvetjum tónleikagesti til að mæta tímanlega til að fá sæti.

Tónleikarnir eru hluti af Menningarveislu Sólheima 2026.

Tilvalið að skoða skoða Sumarsýningu Vinnustofa Sólheima í Listasalnum okkar og njóta veitinganna í Grænu könnunni og tína tómata í Sunnu að loknum tónleikum.

Í blaðinu okkar, Hreindísi, er hægt að sjá dagskrá Menningarveislu Sólheima 2026 og meira til. Hér er hlekkur á Hreindísi https://tinyurl.com/5n7js3dz

Komið og njótið með okkur í allt sumar

Performers