40 ára afmælishátíð Samtaka tungumálakennara á Íslandi

40 ára afmælishátíð Samtaka tungumálakennara á Íslandi

Veröld - hús Vigdísar, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavík Directions

Sat Sep 26 2026 15:00

Á Evrópska tungumáladeginum ætlar STÍL að blása til 40 ára afmælishátíð í Veröld og fagna fortíð, nútíð og framtíð samtakanna. Boðið verður upp á nokkur erindi en aðalfyrirlesarinn er Mia Smith, formaður samtaka tungumálakennara í Svíþjóð. Hún mun segja okkur frá stöðu og stefnu Svíþjóðar í tungumálanámi. Auk þess fáum við tónlistarmann til að skemmta okkur og fjörugan kynni sem mun einnig gleðja okkur með uppistandi og stuði. Á eftir formlegum erindum verður boðið upp á veglegar afmælisveitingar. Nánari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur en við hvetjum fólk til að skrá sig sem fyrst! Dagskrá hefst kl. 15 en húsið opnar kl 14:45.

Viðburðurinn er gestum að kostnaðarlausu en hann er styrktur af Mennta- og barnamálaráðuneytinu og Kennarasambandi Íslands. Aðrir samstarfsaðilar eru Rannís, Vigdísarstofnun og Tungumálamiðstöð Háskóla íslands.

Í tilefni af 40 ára afmælinu er einnig gefin út hátíðarútgáfa af tímaritinu Málfríði og verður hún í boði fyrir gesti á viðburðinum.

Skráning hér: https://forms.cloud.microsoft/e/CVr28cKP7T