Leik og Sprell í Kópavogi

Leik og Sprell í Kópavogi

Leikhúsið í Kópavogi, Funalind 2, 201 Kópavogur Directions

Mon 20.07.2026 13:00

Leik og Sprell verður í Kópavogi í sumar!

Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.

5 daga námskeið, kennt 3 klukkustundir í senn, verð: 31.900 krónur. Kennari námskeiðsins er Júlí Mjöll.

Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is

Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á leikogsprell@gmail.com

Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar! 🥳

Performers

  • Leik og Sprell
    Leik og Sprell

    Sumarnámskeið í leik og söng á ferðalagi um landið!

  • Júlí Mjöll

    Actor | Dancer | Singer | Sewing&Fiber artist | Just a silly guy