Hólahátíð

Hólahátíð

Hólar Cathedral, Hólar, 551 Sauðárkrókur Directions

Sat 15.08.2026 13:00

Hólahátíð fer fram 15. – 16. ágúst 2026

Dagskrá Hólahátíðar

Laugardagur 15. ágúst.

Kl. 13.00 Gengið upp í Gvendarskál. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir prófastur leiðir göngu frá skólahúsi upp í Gvendarskál og sér þar um helgistund við Gvendaraltari.

Kl. 14.00 Hólahátíð barnanna. Lydía Einarsdóttir svæðisstjóri æskulýðsmála og Karl Lúðvíksson sjá um dagskrá fyrir börn og fjölskyldur.

Kl. 15.30 Söngstund í Hóladómkirkju.

Kl. 16.00 Grill við Auðunarstofu.


Sunnudagur 16. ágúst.

Kl. 10.15 Tíðagjörð í Hóladómkirkju.

Kl. 11.00 Fyrirlestur í Hóladómkirkju. Kristján B. Jónasson bókmenntafræðingur flytur fyrirlestur sem ber yfirskriftina: „Vörn Íslands hefst á Hólum.“

Kl. 14.00 Hátíðarmessa í Hóladómkirkju. Gísli Gunnarsson vígslubiskup prédikar. Einnig þjóna í messunni: Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands, Jón A. Baldvinsson, Kristján Valur Ingólfsson og Solveig Lára Guðmundsdóttir, fyrrum vígslubiskupar, sr. Halla Rut Stefánsdóttir, sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir prófastur, Anna Hulda Júlíusdóttir djákni og Steindór R. Haraldsson fyrrum kirkjuþingsmaður. Kirkjukór Hóladómkirkju og Skagfirski kammerkórinn syngja. Organistar eru Jóhann Bjarnason og Eyþór Franzson Wechner.

Veislukaffi.

Kl. 16.00 Hátíðarsamkoma í Hóladómkirkju.

Ræðumaður er Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands.

Ávarp flytur Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands.

Sigríður Ásta Olgeirsdóttir syngur og meðleikari er Vilberg Andri Pálsson.

Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur og skáld flytur ljóð.