Leik og Sprell á Húsavík
Mon 20.07.2026 09:00
Leik og Sprell verður á Húsavík í sumar!
Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.
5 daga námskeið, kennt 3 klukkustundir í senn, verð: 31.900 krónur. Kennari námskeiðsins er Bára Lind Þórarinsdóttir.
Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is
Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á leikogsprell@gmail.com
Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar! 🥳
Performers
-
Leik og SprellSumarnámskeið í leik og söng á ferðalagi um landið!
-
Bára Lind Þórarinsdóttir
Teacher of the course