Bríet Vagna og ÞAU í Kómedíuleikhúsinu
Kómedíuleikhúsið, Svalvogavegur, 471 Haukadalur Directions
Sat 25.07.2026 20:00
Bríet Vagna og ÞAU
TÓNLEIKAR Í KÓMEDÍULEIKHÚSINU Í HAUKADAL
Dásamleg tvenna á Vestfjörðum! 🌻
🗓 Laugardagskvöldið 25. júlí
🕘 Tónleikar hefjast kl. 20:00
🎟️ Miðasala á midiX - 3.500 kr.
https://www.midix.is/en/briet-vagna-og-thau-i-komediuleikhusinu-25-jul-2026/eid/1126
Viðburður á Facebook: https://fb.me/e/4G5vwfvWM
Bríet Vagna
er ung dýrfirsk söngkona sem hefur nýlega lokið framhaldsprófi í rytmísku söngnámi við tónlistarskóla FÍH. Hún hóf ung nám við Tónlistarskóla Ísafjarðar en árið 2022 fluttist hún til Reykjavíkur í frekara tónlistarnám. Bríet Vagna hefur komið fram á ýmsum viðburðum bæði opinberlega og í einkasamkvæmum. Tónlistin hefur alltaf verið stór partur af hennar lífi og nýtur hún sig hvergi jafn vel eins og þegar hún spilar og syngur.
Henni þykir alltaf jafn gott að koma heim í Dýrafjörðinn og hlakkar hún mikið til að stíga á svið í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal. Hún lofar ljúfum tónum og notalegri stemningu og hver veit nema að hún flytji eitthvað frumsamið efni á tónleikunum.
Fylgdu Bríeti á Instagram:
https://www.instagram.com/vagna_music?igsh=MXBzZmw0dXMwcHNzaw%3D%3D&utm_source=qr
☀️☀️☀️☀️☀️
ÞAU
eru söng- og leikkonan Rakel Björk og gítar- og trommuleikarinn Gaddi.
Tær rödd Rakelar mætir grófum gítarleik Gadda í frumsamdri tónlist við íslensk ljóð, þar sem áhrif úr rokki, indí, jazzi og poppi fléttast saman. Með looperum og fjölbreyttum effektum á raddir og hljóðfæri skapa ÞAU lifandi og óvæntan hljóðheim á sviði, þar sem aðeins tveir tónlistarmenn fylla rýmið af tónlist.
ÞAU hafa sent frá sér plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland, sem hafa hlotið góðar viðtökur, og vinna ÞAU nú að þriðju plötunni, ÞAU taka Suðurland.
ÞAU komu nýverið fram á HEIMA í Hafnarfirði, á Midgard og á listahátíðinni Frjó á Siglufirði, og halda nú ferðalaginu áfram um landið!
Fylgstu með hljómsveitinni ÞAU:
Spotify: https://open.spotify.com/artist/6Ct50lb1SYNbNs1JEPDGcJ...
EPK/Heimasíða: https://www.rakelbjork.com/thau-music
Facebook: https://www.facebook.com/thaucompany
Instagram: https://www.instagram.com/thau.company/
Performers
-
ÞAUFinnish symphonic metal where the melody is in the place of a king!
Vocals: Markku Kuikka
Lead guitar: Emil Pohjalainen
Guitars: Lasse Nyman
Keyboards & piano: Emmi Taipale
Bass: Pasi Tanskanen
Drums: Joonas Pykälä-Aho
Homepage
Metal Archives
Myspace -
Bríet Vagna
Performer in LIFUN