ÞAU á Hesteyri

ÞAU á Hesteyri

Hesteyri, , 401 Ísafjörður Directions

Sun 26.07.2026 14:00

Hljómsveitin ÞAU heldur einstaka tónleika á Hesteyri í júlí!

🗓 Sunnudaginn 26. júlí
🕘 Kl. 14:00 - 19:45
🎟️ Miðasala á https://hornstrandaferdir.is/

Sjá viðburð á Facebook:
https://fb.me/e/70Z6qhp6l

Boðið verður upp á tónleikaferð frá Ísafirði þar sem siglt er yfir á Hesteyri, gestir fá tíma til að njóta staðarins, þiggja veitingar í Læknishúsinu og ljúka deginum með tónleikum í mögnuðu umhverfi Hornstranda.

ÞAU eru söng- og leikkonan Rakel Björk Björnsdóttir og gítar- og trommuleikarinn Garðar Borgþórsson.

Tær rödd Rakelar mætir grófum gítarleik Gadda í frumsamdri tónlist við íslensk ljóð, þar sem áhrif úr rokki, indí, jazzi og poppi fléttast saman. Með looperum og fjölbreyttum effektum á raddir og hljóðfæri skapa ÞAU lifandi og óvæntan hljóðheim, þar sem aðeins tveir tónlistarmenn fylla rýmið af tónlist.

ÞAU hafa sent frá sér plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland, sem hafa hlotið góðar viðtökur, og vinna nú að sinni þriðju plötu, ÞAU taka Suðurland. Sveitin verður á tónleikaferðalagi í sumar og hlakkar mikið til að mæta á Hesteyri með tónlistina sína.

Dagskrá
14:00 Siglt frá Ísafirði
15:15 Komið á Hesteyri
15:15 - 16:00 Gestir skoða Hesteyri og njóta staðarins
16:00 - 16:30 Veitingar í Læknishúsinu
16:30 Tónleikar hefjast
18:00 Tónleikum lýkur
18:15 Gestir ganga til báts
18:30 Brottför frá Hesteyri
19:45 Komið til Ísafjarðar

🌻🌻🌻🌻🌻

Performers

  • ÞAU
    ÞAU
    Finnish symphonic metal where the melody is in the place of a king!

    Vocals: Markku Kuikka
    Lead guitar: Emil Pohjalainen
    Guitars: Lasse Nyman
    Keyboards & piano: Emmi Taipale
    Bass: Pasi Tanskanen
    Drums: Joonas Pykälä-Aho


    Homepage
    Metal Archives
    Myspace