Draugar Dýrafjarðar

Draugar Dýrafjarðar

Kómedíuleikhúsið, Svalvogavegur, 471 Haukadalur Directions

Tue 04.08.2026 20:00

Leiksýning Sumarleikhús Kómedíuleikhússins er Draugar Dýrafjarðar. Óvænt óvætta sýning sem fær hárin til að rísa þó um hásumar sé.

Miðaverð: 4.900.- kr

Miðasala midix.is

Miðasölusími: 891 7025

Kómedíuleikhúsið frumsýnir í sumar hið magnaða leikverk Draugar Dýrafjarðar eftir Elfar Loga Hannesson.

Leikritið er krassandi og áhrifamikið verk byggt á mögnuðum og dagsönnum draugasögum úr Dýrafirði. Skyggnst verður inn í handanheima þar sem einhverjir magnaðustu draugar fjarðarins koma við sögu. Fremst í flokki er Gunnhildur, sem gekk aftur lengur en flestir aðrir draugar landsins, nærri eina öld.

Sýningin fer fram á sjálfum söguslóðunum í leikhúsinu í Haukadal í Dýrafirði, þar sem draugagangur hefur lengi verið sagður hvað mestur og magnaðastur á Vestfjörðum.

Hér er á ferðinni óvænt og áhrifamikil leiksýning sem mun án efa veita gestum viðeigandi hroll.

Höfundur og leikari: Elfar Logi Hannesson

Kvæðamaður: Þórarinn Hannesson

Sellóstef/Tónar: Eyþór Laxdal Arnalds

Búningar: Sunnefa Elfarsdóttir

Lýsing: Sigurvald Ívar Helgason

Leikmynd og leikstjórn: Marsibil G. Kristjánsdóttir