Uppskerudagar Skapandi sumarstarfa 2026: Súrrealismi og smjörkrem

Uppskerudagar Skapandi sumarstarfa 2026: Súrrealismi og smjörkrem

Gerðarsafn – Kópavogur Art Museum, Hamraborg 4-6, 200 Kópavogur Directions

Thu 23.07.2026 14:00

Súrrealismi og smjörkrem er myndlistar- og kökulistarverk eftir Hrafnhildi Sunnu Eyþórsdóttur, listamanneskju í Skapandi sumarstörfum Kópavogs.

Verkefnið sækir innblástur í verk eftir listamanninn Roger Dean og sameinar myndlist, bakstur og kökuskreytingar í stórbrotnu ætilegu listaverki þar sem litir, form og áferð renna saman. Gestir fá tækifæri til að sjá afrakstur sumarsins og komast á bragðið á því hvernig kökuskreytingar geta orðið að myndlist.

📅 23. júlí kl. 14:00-17:00

📍 Gerðarsafn

🍰Kakan skorin/í boði frá kl 16:00

Verkefnið er hluti af Skapandi sumarstörfum Kópavogs 2026.

Performers