Ragga Gröndal

Ragga Gröndal

Harpa | Björtuloft, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions

Tue 04.08.2026 20:00

Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með sumardagskrá sína með spennandi tónleikatvennu þriðjudaginn 4. ágúst og miðvikudaginn 5. ágúst kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum klúbbsins kemur fram söngkonan Ragga Gröndal ásamt þeim Guðmundi Péturssyni og Birgi Steini Theodórssyni. Á efnisskránni verða uppáhaldslög úr amerísku söngbókinni, sígild íslensk lög og valdar tónsmíðar úr smiðju Röggu. Tríóið hefur starfað saman um árabil og þróað með sér náið samspil. Í látlausum útsetningum þeirra fá lögin að njóta sín og hvert hljóðfæri fær sitt rými.

Ragga Gröndal

The mesmerizing vocalist Ragga Gröndal will perform with Guðmundur Pétursson and Birgir Steinn Theodórsson programme that will feature favourite songs from the Great American Songbook, beloved Icelandic classics and selected original compositions by Ragga. They have performed together for many years and developed a close musical connection. The trio’s understated arrangements highlight both the songs themselves and the musical conversation between voice, guitar and double bass.

Ragga Gröndal, vocals

Guðmundur Pétursson, guitar

Birgir Steinn Theodórsson, bass

The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 5200.

Spennandi sumardagskrá Múlans heldur síðan áfram á þriðjudags- og miðvikudagskvöldum fram í miðjan ágúst. Múlinn er á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.

Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.

Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.

Tónleikar Múlans fara fram í sumar á þriðjudags- og á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu

Performers