Uppskerudagar Skapandi sumarstarfa 2026: YMJA með öllu

Uppskerudagar Skapandi sumarstarfa 2026: YMJA með öllu

Gerðarsafn – Kópavogur Art Museum, Hamraborg 4-6, 200 Kópavogur Directions

Thu 23.07.2026 12:00

YMJA með öllu er gjörninga- og sviðslistahópur sem samanstendur af Arndísi Maríu Ólafsdóttur, Ástrós Hind Rúnarsdóttur og Elvu Maríu Birgisdóttur, listafólki í Skapandi sumarstörfum Kópavogs.

Fimmtudaginn 23. júlí mun gjörningahópurinn YMJA með öllu, sem er hluti af Skapandi sumarstörfum Molans, fremja svokallaðan úthaldsgjörning á Gerðarsafni í sex klukkustundir samfleytt, milli kl. 12-18. Með gjörningnum leitast listakonurnar við að eiga í samtali við enska listamanninn Jeremy Deller en sýning hans Landlæg hamingja stendur nú yfir á safninu.

Í verkum sínum tekur Deller það sem fólk þekkir úr sínu umhverfi og skoðar það í nýju ljósi. Árið 1993 hélt listamaðurinn sýningu á heimili foreldra sinna þar sem hann bjó enn í kringum þrítugt. Verkin hans frá þessum tíma voru lítil og látlaus en hann stillti þeim upp inn á milli hversdagslegu hlutanna sem er að finna á venjulegu heimili. Með þessu öðluðust þau nýja merkingu og umbreyttu rýmunum í nýja heima. Listakonur YMJU með öllu gera tilraun til þess að snúa þessu á hvolf og færa hversdaginn inn á listasafnið sem rými.

Er hægt að gera listasafnið að heimili sínu? Og ef svo er, verður það að vera áhugavert? Líf annarra eru nógu spennandi til þess að fylgjast með þeim á samfélagsmiðlum, en eru þau nógu áhugaverð til þess að vera til sýnis á listasafni? Ef verkin eru hversdagsleg og gjörðirnar eru hversdagslegar verður listasafnið sömuleiðis hversdagslegt?

📅 23. júlí, kl 12:00-18:00

📍 Gerðarsafn

Verkið er hluti af Skapandi sumarstörfum Kópavogs 2026.

Performers

  • Molinn miðstöð unga fólksins
    Molinn miðstöð unga fólksins

    💛 Molinn er notalegt og skapandi rými fyrir ungt fólk (16-25 ára) í Kópavogi.

    🎤 Upptökustúdíó 🐉 D&D kvöld 🤝 Ráðgjöf frá Berginu Headspace 🎉 Viðburðir og smiðjur ☕ Öruggt samfélag

    Komdu eins og þú ert. Öll velkomin ✨🫶🏳️‍⚧️🏳️‍🌈🌍💛✌️