DAVID BOWIE 80 ÁRA - TÓNLEIKASÝNING

DAVID BOWIE 80 ÁRA - TÓNLEIKASÝNING

Háskólabíó | Salur 1, Hagatorg, 107 Reykjavík Directions

Sat 27.02.2027 20:00

Í tilefni af 80 ára afmæli David Bowie verður honum sýndur verðskuldaður heiður með stórkostlegri tónleikasýningu í Háskólabíói þann 27. febrúar næstkomandi.

Einvalalið söngvara og hljóðfæraleikara mun flytja þekktustu lög meistarans samhliða því að saga Bowie verður rifjuð upp í sögulegu samhengi af doktornum og músíkspekúlantinum Arnari Eggerti Thoroddsen. Þetta verður einstök kvöldstund sem enginn sannur Bowie-aðdáandi má missa af.

Eyþór Ingi Gunnlaugsson mun leiða hóp forsöngvara. Eiríkur Hauksson, Magni Ásgeirsson og Diljá Pétursdóttir verða meðal flytjenda, ásamt fleiri stjörnum sem verða kynntar til sögunnar á næstunni.

Sögumaður: Arnar Eggert Thoroddsen
Trommur: Þorvaldur Þór Þorvaldsson
Bassi: Ingi Björn Ingason
Píanó: Tómas Jónsson
Hljómborð: Þorbjörn Sigurðsson
Gítar: Reynir Snær Magnússon
Gítar: Franz Gunnarsson
Saxafónn / ásláttur: Sigurður Flosason

Forsala verður auglýst bráðlega – takið daginn frá! 

Performers