Sagnakveld Kómedíuleikhússins
Kómedíuleikhúsið, Kómedíuleikhúsið, Haukadalur Directions
Sun 16.08.2026 20:00
Sagnakveld Kómedíuleikhússins er nýr viðburður í Sumarleikhúsi okkar. Boðið verður uppá eitt Sagnakveld í hverjum mánuði sumarsins og nú er komið að síðasta Sagnakveldi þessa sumars.
Sögutollur aðeins 3.000.- krónur
Miðasala á staðnum. Græni bar opinn og posi á staðnum.
Á Sagnakveldi Kómedíuleikhússins stíga þrír sagnamenn á senu en þó aðeins einn í einu. Hver sögumaður hefur 20 mínútur til að segja sína sögu. Ekki má nota skjávarpa eða önnur tæknitæki aðeins sögumaðurinn sjálfur og sagan hans alveg einsog í bastofunni hjá Gísla Súra í gamla daga. Söguefnið getur verið nánast hvað sem er og því verður þetta ávallt óvænt og söguleg stund.
Sagnamenn ágúst mánaðar og söguefni þeirra eru:
Heimir Gestur Hansson - Segir Hoffmanssögur, sögur af hinum eina sanna Pétri Hoffman.
Helen Hafgnýr Cova - Segir mjög svo óvænta sögu.
Fjölnir Ásbjörnsson - Segir söguna af því nær hann samdi lag um Halldór Laxness.
Komum saman í sögudalnum Haukadal og njótum einstakra sagna í Haukadalsleikhúsinu.
Performers
-
Helen Hafgnýr Cova
Rithöfundur
-
Margrét Hrönn Hallmundsdóttir
Site manager at Hrafnseyri and former head of the Archaeology Department