Áfallajóga: 25 klst framhaldsnám
Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions
Sat Jan 09 2027 09:00
25 klst. framhaldsnám í áfallajóga
Náminu er skipt niður á 4 laugardaga og fer kennsla fram á Zoom.
Dagsetningarnar eru þessar:
Lota 1: laugardagur 9.janúar 2027 kl. 9-13
Lota 2: laugardagur 30.janúar 2027 kl. 9-13
Lota 3: laugardagur 20.febrúar 2027 kl. 9-13
Lota 4: laugardagur 13.mars 2027 kl. 9-13
Fyrir utan fyrirlestra á Zoom þá fá þátttakendur aðgang að fjölda verklegra æfinga í formi myndbandsupptaka sem verða aðgengilegar áfram að námskeiði loknu.
Allar lotur eru teknar upp og hægt að horfa þegar hentar.
Í náminu verður m.a. farið ítarlega í taugakerfi líkamans, vagus taugina og heilun, psoas vöðvann, sómatískar æfingar, áfallahugleiðslur og mismunandi æfingar fyrir ákveðnar tegundir áfalla.
Námið er opið öllum sem hafa lokið grunnnámi í áfallajógafræðum - annað hvort hjá Karma eða öðrum. Á námskeiðinu verður gengið út frá því að nemendur þekki vel taugakerfið, vagus taugina, psoas vöðvann, kulnun og sómatískar æfingar.
Athugið að ekki má kenna jóga nema hafa lokið 200 tíma grunnnámi í jóga en hægt er að nýta sér æfingarnar fyrir sjálfan sig og aðra. Námið er viðurkennt af Yoga Alliance sem endurmenntun fyrir jógakennara.
Verð kr. 69.900. Allir fá kvittun fyrir greiðslu og viðurkenningarskjal að námi loknu.
Kennari er Guðrún Reynis. Guðrún er með 200 tíma jógakennararéttindi frá jógaskóla Kristbjargar, 500 tíma réttindi frá Yoga Skyros í Grikklandi og 200 tíma réttindi í trauma-sensitive yoga frá jógaskóla Charlotte Watts í Bretlandi. Að auki er Guðrún með kennsluréttindi í yin yoga, yoga nidra, restorative yoga, rólujóga, pilates, foam flex og trigger point pilates.
Skráning á karmajogastudio.is/namskeid.
Frekari upplýsingar á greynis@dohomeyoga.com
Karma & Jógaskólinn er Yoga Alliance viðurkenndur skóli.