"Alltaf er einhver sem grætur" - Loksins Fado í Bergi menningarhúsi, Dalvík!
Cultural house Berg, Goðabraut 2, 620 Dalvík Directions
Fri Oct 02 2026 20:00
GESTABOÐ KRISTJÖNU MEÐ FADO GÍTARLEIKARANUM JOSÉ MANUEL NETO, 2. OKTÓBER KL 20.00.
Jose Manuel Neto hinn þekkti portúgalski fadogítarleikari mun verða gestur minn á tónleikum föstudaginn 2. október kl. 20.00. Við munum endurtaka leikinn frá því í Hörpu á síðasta ári en núna fyrir norðan. Við munum spila nýju lögin mín í fadobúningi og önnur þekktari lög sem passa einstaklega vel við fadogítarinn.
Það eru mikil forréttindi að fá að vinna með Jose og það er unun á að hlýða hann leika af fingrum fram, en hann mun færa okkur ekta fado beint í æð. Fado er ástríðu- og tegafullt tónlistarform sem felur í sér mikla túlkun í gegnum sögur en einnig án söngs en þá tekur þessi sérstaki hljómur Fadogítarssins við. Þetta eru þjóðlög þeirra portúgala. Jose Manuel er vel þekktur í bransanum í Lissabon og er mikið bókaður fram í tímann, en vildi alls ekki sleppa að koma til Íslands og koma norður á heimaslóðir mínar. Mikill heiður það.
Jose spilar yfirleitt í stórum og fallegum sölum vítt um Portúgal en finnst ekki síður gott að spila á litlu stöðunum þar sem nándin er mikil.
Með okkur José munu stíga á stokk þeir Örn Eldjárn á gítar og Jón Rafnsson á bassa.
Listrænn stjórnandi: Aðalbjörg Kristín Jóhannsdóttir
FORSALA:
Forsala hefst mánudaginn 1. september í Bergi menningarhúsi Dalvíkur, á opnunartíma bókasafnsins. Forsala fer fram á staðnum en einnig með því að senda skilaboð til mín hér á þessari síðu, panta og tryggja sér miða með millifærslu.
MIÐAVERÐ Í FORSÖLU – 6.500 KR.
MIÐAVERÐ VIÐ HURÐ ÞANN 2. OKT - 7.500 KR.
FORSÖLU LÝKUR 1. OKT.
Opnunartími bókasafns Bergs:
Virkir dagar: 11:00-17:00
Laugardagar: 13:00-16:00
Sunnudagar: LOKAÐ
Frá kl. 18:00-19:30 verður hægt að kaupa fiskisúpu á Hólnum, veitingastað menningarhússins. Pantanir í síma: 842 1978.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kær kveðja,
Kristjana.