Barnamenningarhátíð í Garðabæ -Fjör, sköpun og samvera!

Barnamenningarhátíð í Garðabæ -Fjör, sköpun og samvera!

Bókasafn Garðabæjar, Garðatorg 7, 210 Garðabær Directions

Sat Oct 17 2026 11:30

Laugardaginn 17. október fer fram uppskeruhátíð Barnamenningarhátíðar í Garðabæ. Skólahópar hafa frá 12.- 16. október tekið þátt í viðburðum í Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar, Minjagarðinum á Hofsstöðum og á Garðatorgi 7 og fjölskyldum er boðið að taka þátt í fjörinu í lok hátíðar.

Dagskráin er sem hér segir:

11.30-12:45 Bókasafn Garðabæjar-Leikur að myndum og orðum.

Smiðja fyrir 5-8 ára: Skapaðu þinn eigin dreka með Iðunni Örnu, bókasafnsdrekahöfund.

Smiðja fyrir 9-12 ára: Ritsmiðja með Arndísi Þórarinsdóttur rithöfundi sem vinnur með orð upp úr orðakrukku bókasafnsins.

12:15 Minjagarðurinn á Hofsstöðum-Landnámskrakkar

Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur segir frá lífinu á landnámsöld. Hvernig var að vera landnámskrakki í Garðabæ?

13.00 Hönnunarsafn Íslands-Sögustund

Ingibjörg Fríða Helgadóttir úr Þjóðsögukistunni og í Ljósi krakkasögunnar á Rúv, og Halldór Eldjárn tónlistarmaður kynna heim vöruhönnunar með sögum og tónum en sögustundin fer fram á sýningunni Hönnunarsafnið sem heimili.

14.00 Garðatorg 7-Danspartý

Friðrik Agni og Anna Claessen leiða partýið sem er ferðalag um heiminn með tónlist og dansi.

Dagskráin er ókeypis og öll velkomin.