Bluebeard's Castle

Bluebeard's Castle

Norðurljós in Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Directions

Fri Oct 30 2026 18:00

Kastali Bláskeggs eftir Bartók í fyrsta sinn á Íslandi - aðeins þessar tvær sýningar!

Athugið að föstudagssýningin 30. október byrjar klukkan 18:00 og sunnudagssýningin 1. nóvember klukkan 20:00

Hvar er sviðið, góðir áhorfendur? Er það utan við okkur eða innra með okkur?

Í inngangi eða prólóg að Kastala Bláskeggs erum við leidd inn í eitt magnaðasta sálfræðiverk óperusögunnar. Frá upphafi verksins er óljóst hvort kastalinn sem við göngum inn í sé raunverulegur staður eða okkar innra sjálf – rými minninga, þrár, ótta, myrkurs, ljóss og leyndarmála.

Judith, hin nýja brúður Bláskeggs, gengur inn í myrkan kastala hans og krefst þess að allar kastaladyrnar verði opnaðar, einar af annarri. Með hverjum dyrum færist hún nær því sem leynist undir yfirborðinu. Kastalinn verður að rafmögnuðu og hlöðnu rými þar sem fortíð, þrá og ótti hafa safnast upp - en einnig fegurð og birta. Spennan vex, hleðslan vex, dyrnar opnast og það sem hefur verið lokað inni og bælt niður brýst smám saman fram.

Hvað geymum við innra með okkur? Hvernig er einmanaleikinn? Hversu mikið getur ein manneskja borið áður en eitthvað brestur? Hversu vel getum við raunverulega þekkt aðra manneskju? Eigum við rétt á öllum leyndarmálum þeirra sem við elskum – og hvað gerist þegar löngunin til að vera náinn annarri manneskju rekst á þörfina að eiga eitthvað sem aðeins tilheyrir okkur sjálfum?

Meira en hundrað árum eftir að Bartók samdi óperuna eiga þessar spurningar enn brýnt erindi við okkur öll. Tónlistin magnar togstreituna svo úr verður rafmögnuð upplifun. Hljómsveitin er eins og undirmeðvitund persónanna: hún kraumar undir yfirborðinu, þrýstir á, springur út og hverfur aftur inn í myrkrið.

Kastali Bláskeggs verður fluttur í hálfsviðsettri uppfærslu og í áhrifamikilli útsetningu Stephen Higgins fyrir 7 manna kammersveit. Higgins þéttir hinn gríðarstóra hljóðheim Bartóks án þess að missa upprunalega litinn og sálrænu spennuna sem einkennir verkið. Útsetningin hefur þegar verið notuð og flutt víða um heim, meðal annars í London, Edinborg, Toronto og Atlanta, Finnlandi og Kína.

Leikstjórinn Kenza Koutchoukali leikstýrði Kastala Bláskeggs fyrir Opera Zuid í Hollandi árið 2024 og uppfærsla Óperudaga sækir innblástur í þá uppfærslu, með góðfúslegu leyfi.

Í Kastala Bláskeggs á Óperudögum má búast við spennuþrungnum flutningi þar sem raddirnar, hljóðfærin og rýmið mæta áhorfendum á rafmagnaðan hátt. Gestir verða leiddir inn fyrir dyr kastalans – um leið og spurningin sem verkið leggur fyrir okkur strax í upphafi vaknar - hvar er svið lífsins?

Sýningin tekur um 1 klukkustund.

Flytjendur

Bláskeggur: Andri Björn Róbertsson

Judith: Guja Sandholt

Leikstjóri: Kenza Koutchoukali

Hljómsveitarstjóri: Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir

Útsetning: Stephen Higgins

Hljómsveit

Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla

Þórhildur Magnúsdóttir, víóla

Steiney Sigurðardóttir, selló

Birkir Örn Hafsteinsson, klarinett

Baldvin Tryggvason, klarinett

Jason Friedman, horn

Stephen Higgins, píanó