Laxness í leikhúsinu
Laxness Museum - Gljúfrasteinn, Gljúfrasteinn, 270 Mosfellsbær Directions
Sun 19.07.2026 16:00
Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari leiða ykkur inn í draumheim leikhússins þar sem helstu tónskáld og leikstjórar landsins sameinuðu krafta sína í að færa skáldverk nóbelskáldsins á fjalir leikhúsanna.
Flutt verða sönglög eftir Atla Heimi Sveinsson úr leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur á Sjálfstæðu fólki í Þjóðleikhúsinu 1999, Jón Ásgeirsson úr leikgerð Sveins Einarssonar eftir Húsi skáldsins árið 1981 og að lokum sönglag Jóns Nordal, „Hvert örstutt spor“, úr leikritinu Silfurtúnglinu, en það var frumflutt í Þjóðleikhúsinu árið 1954 í leikstjórn Lárusar Pálssonar.
Öll eru hjartanlega velkomin. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 sunnudaginn 19. júlí og aðgangseyrir er 3.900 krónur. Miðar eru seldir í afgreiðslu Gljúfrasteins.
Hér eru upplýsingar um staðsetningu safnsins, aðgengi og bílastæði: https://gljufrasteinn.is/is/um_gljufrastein/fyrir_gesti/stadsetning_gljufrasteins/
Hér eru upplýsingar um alla stofutónleika Gljúfrasteins 2026: https://gljufrasteinn.is/is/um_gljufrastein/vidburdir/stofutonleikar/stofutonleikaroe_2026/
Hallveig Rúnarsdóttir hefur sungið frá unga aldri. Hún hóf söngnám 16 ára gömul hjá Sigurði Demetz og lærði svo í Tónlistarskólanum í Reykjavík hjá Ruth Magnússon. Eftir það hóf hún nám við Guildhall School of Music and Drama í London og útskrifaðist þaðan með láði árið 2001.
Hallveig hefur sungið fjölda óperuhlutverka bæði hérlendis og erlendis. Þar má helst nefna Donnu Önnu í Don Giovanni og Michaèlu í Carmen hjá Íslensku óperunni en einnig hefur Hallveig frumflutt 3 óperuhlutverk sem samin hafa verið sérstaklega fyrir hana.
Hún hefur komið fram sem einsöngvari víða um heim, hún hefur sungið sópranhlutverkið í mörgum helstu stórverkum tónbókmenntanna og hefur sungið margoft með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk fjölda annarra hljómsveita bæði hér á landi og erlendis.
Hallveig hefur sérstaklega verið virk í flutningi nýrrar tónlistar og hefur frumflutt mörg ný íslensk verk. Hún hefur og haldið fjölda einsöngstónleika á Íslandi og erlendis undanfarin ár þar sem hún hefur lagt áherslu á ljóðasöng.
Hallveig hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins í sígildri- og samtímatónlist árið 2013 og 2018 og tilnefningu til sömu verðlauna 2014, 2016 og 2020. Hún var einnig tilnefnd til Grímuverðlauna sem söngvari ársins árin 2014 og 2017.
Hún er listrænn stjórnandi Cantoque Ensemble sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir flutning sinn bæði hér á landi og erlendis.
Hrönn Þráinsdóttir stundaði framhaldsnám við píanóleik við Staatliche Hochschule für Musik í Freiburg, lauk þaðan diplóma kennaraprófi vorið 2004 og tók meðleik við ljóðasöng sem aukafag. Kennarar hennar voru Dr.Tibor Szász og Hans-Peter Müller. Að því loknu nam hún við ljóðasöngdeild Tónlistarháskólans í Stuttgart undir handleiðslu Cornelis Witthoefft og lauk sérhæfðu diplómanámi sumarið 2007. Hrönn hefur komið fram á tónleikum víða sem einleikari, meðleikari og við flutning kammertónlistar auk þess að hafa hljóðritað fyrir útvarp og leikið inn á geisladiska. Hún hefur verið virk í uppeldisstarfi ungra söngvara, verið tónlistarstjóri uppfærslna síðustu ára hjá óperudeild Söngskólans í Reykjavík þar sem fluttar hafa verið perlur óperubókmenntanna. Hún hefur einnig ferðast víða um land síðustu misseri og kynnt óperutónlist og hið íslenska sönglag fyrir grunnskólabörn í öllum landshlutum. Hún er einn helsti meðleikari óperusöngvara á Íslandi og hefur verið afar virk í tónleikahaldi á Íslandi. Hrönn er kennari við Söngskólann í Reykjavík, Söngskóla Sigurðar Demetz og við Menntaskóla í tónlist, MÍT.
Performers
-
Hrönn ÞráinsdóttirPianist, active in performing new music and has recorded for radio and CDs.