Bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi

Bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi

Sviðið, Sviðið, Selfoss | Sviðið Directions

Fri 21.08.2026 21:00

Hér stöndum við og getum ekki annað

en reynt að hafa gaman að þessu.

Sumarið 2026 fer líklega ekki í sögubækurnar

fyrir góðviðri eða lognmollu,

og þá leggjum við veðrið og stjórnmálin að jöfnu.

Þjóðmálamenn kunna þó að hafa gaman að lífinu.

Því munum við kynnast á Bjórkvöldi Þjóðmála á

Sviðinu á Selfossi 21. ágúst nk.

þar sem farið verður yfir stöðuna í aðdraganda

þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB.

Beittar umræður um menn og málefni,

þó aðallega menn.

Það er frítt inn á viðburðinn.

Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Húsið opnar 20:00.

Hægt er að panta flöskuborð fyrir 8 manns á netfangið

svidid@svidid.is

Fordrykkur hefst á Risinu Vínbar í mathöllinni frá 18:00 en við viljum benda á

að leyfilegt er að koma með veitingar frá

veitingastöðum mathallarinnar en drykkir

eru afgreiddir frá Risinu Vínbar. Hægt er að bóka borð á Risinu á netfangið risid@risid.is