Sumarjazz VII - Miles Davis 100

Sumarjazz VII - Miles Davis 100

Jomfruin, Lækjargata 4, 101 Reykjavík Directions

Sat 18.07.2026 15:00

Á sjöundu tónleikum sumarsins, laugardaginn 18. júlí, kemur fram sextett trompetleikarans Ara Braga Kárasonar. Sölvi Kolbeinsson leikur á altó saxófón, Jóel Pálsson á tenor saxófón, Eyþór Gunnarsson á píanó, Valimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur. Þeir munu flytja dagskrá tileinkaða trompetleikaranum Miles Davis sem hefði orðið 100 ára í ár. Tónleikarnir fara fram utan dyra á Jómfrúartorginu. Þeir hefjast kl 15 og standa til kl 17. Aðgangur er ókeypis.