Krummi á Hólmavík

Krummi á Hólmavík

Byggðasafn á Hólmavík. | Byggðasafn á Hólmavík,

Fri 14.08.2026 21:00

Krummi á Hólmavík 

Söngvaskáldið Krummi Björgvinsson heldur tónleika á Hólmavík í fyrsta sinn og kemur fram við opnun Byggðasafnsins á Hólmavík. Með honum á sviði verður gítarleikarinn Bjarni Sigurðarson.

Krummi hefur að undanförnu gefið út lög af væntanlegri plötu sinni sem kemur út í haust. Lögin hafa hlotið frábærar viðtökur, verið mikið spiluð í útvarpi og vakið verðskuldaða athygli bæði hér heima og erlendis.

Á tónleikunum mun Krummi flytja frumsamið efni af væntanlegri plötu ásamt eldri lögum og vel völdum ábreiðum. Kvöldið verður persónulegt, hlýlegt og notalegt þar sem farið verður um víðan völl í tónlistinni.

Þetta eru einstakir tónleikar við sérstakt tilefni,  kvöldstund sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá sér fara.


Performers