Sara Magnúsdóttir kvartett á Múlanum
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Mon 17.08.2026 20:00
Jazzklúbburinn lýkur sumardagskránni að þessu sinni með með spennandi tónleikatvennu þriðjudaginn 17. ágúst og miðvikudaginn 18. ágúst kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu þar sem kvartett Hammondleikarans Söru Magnúsdóttur kemur fram. Þau mun flytja lög af nýlegri plötu þeirra, A Place to Bloom, sem kom út á seinasta ári ásamt nýju óútgefnu efni. Sara hefur verið búsett í New York um árabil en hefur þrátt fyrir það verið virk í íslenskri tónlistarsenu og komið reglulega til landsins. Hún var í ár valin bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Kvartettinn skipa auk Söru, Jóel Pálsson á saxófón, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar, Einar Valur Scheving á trommur. Þau hafa unnið saman um árabil og komið fram saman nokkrum sinnum á seinustu 2 árum. Gestir mega búast við kvöldstund sem spannar frá blús til jazz, með góðu grúvi og grípandi laglínum.
Sara Magnúsdóttir Quartet
Jazz club Múlinn ends the summer program with a concert where Hammond organist Sara Magnúsdóttir performs with her quartet, music from their newly released album called "A Place to Bloom" as well as new unreleased material. Sara has been living in New York for a few years but performing regularly in Iceland with her quartet as well as other projects. Sara received the award of “Rising Star” at the Icelandic Music Awards this year. Guests can expect a night of original music spanning from blues to bebop, with plenty of groove and rich melodies.
Jóel Pálsson, saxophone
Andrés Þór Gunnlaugsson, guitar
Sara Magnúsdóttur, hammond organ
Einar Valur Scheving, drums
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 5200.
Sumardagskrá Múlans lýkur með þessum tónleikum en hann snýr aftur með spennandi haustdagskrá um miðjan september. Múlinn er á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram í sumar á þriðjudags- og á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu