Björgvin - Maður sviðs og söngva - Aukatónleikar
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Sat 28.11.2026 16:00
Björgvin Halldórsson var maður sviðs og söngva. Hann er goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Laugardaginn 28. nóvember hittumst við í Eldborg og heiðrum minningu hans.
Björgvin gerði tónlistina að ævistarfi og eftir hann liggja margar helstu perlur íslenskrar dægurtónlistar. Sjálfur hafði hann í huga að halda upp á 75 ára afmæli sitt með heiðurstónleikum og var undirbúningur hafinn þegar hann lést skyndilega þann 9. apríl síðastliðinn. Í samráði við fjölskyldu Björgvins var tekin sú ákvörðun að halda áfram með hugmyndir sem þegar voru komnar fram. Eldborg var bókuð og Björgvin var sjálfur búinn að velja mynd í plakatið og langt kominn með val á lögum og söngvurum.
Björgvin hugsaði stórt og verður því allt lagt í sölurnar að gera glæsilega tónleika í minningu hans. Við vitum jú öll hver hann var!
Svala Bjōrgvins vinnur nú að endurgerð af laginu Skýið, sem faðir hennar Björgvin samdi árið 1978 og kom út á pötunni Ég skal syngja fyrir þig. Allir Íslendingar þekkja þetta lag og Svala flutti það svo eftirminnilega í jarðarför föður síns. Skýið með Svölu kemur út föstudaginn 12. júní.
Svala og Krummi Björgvinsbörn leiða landslið íslenskra tónlistarmanna á svið Eldborgar og í sameiningu flytja þau okkur tónlistina sem Björgvin gaf okkur síðastliðna áratugi.
Ógleymanlegt kvöld í vændum þar sem Vetrarsól brýst í gegnum Skýið og okkar Eina ósk er að Riddari götunnar og Gullvagninn rati rétta leið. Björgvin, við Syngjum fyrir þig og Þó líði ár og öld mun Minning þín lifa.
GESTGJAFAR:
Svala
Krummi
SÖNGVARAR:
Ásgeir Trausti
Eyjólfur Kristjánsson
GDRN
Helgi Björnsson
Mugison
Ragnheiður Gröndal
Sigga Beinteins
Sigríður Thorlacius
Stefán Hilmarsson
SÉRSTAKUR GESTUR:
Ari Eldjárn
HLJÓMSVEIT:
Þóris Úlfarsson – Hljómborð, hljómsveitarstjórn, útsetningar
Bjarni Sigurðarson – Gítar
Einar Scheving – Slagverk
Gunnlaugur Briem – Trommur
Jón Elvar Hafsteinsson – Gítar
Ómar Guðjónsson – Pedal Steel
Óttar Sæmundsen – Bassi
Phillip Joseph Doyle – Sax
Tómas Jónsson – Hljómborð
BAKRADDIR:
Andrea Ingvarsdóttir
Kristján Gíslason
Íris Lind
KÓR:
Karlakórinn Fóstbræður
LEIKSTJÓRN:
Gunnar Helgason
Performers
-
Sena Live
Sena er upplifunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæða viðburðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
-
Ásgeir Trausti
Musician
-
EyfiPerformer of popular songs
-
GDRNOfficial page of GDRN
All bookings:
mani@paxal.is
-
Helgi BjörnsHelgi Björns is an artist promoting his new album.
-
MugisonI played my first Airwaves in 2003! feels like it was yesterday – I´ve done many different sets, laptopboogie, rockband crazyness, accustic nicey, this year I´m gonna Paul Simon the hell out of my songs with my new 10 peace band. WOW! it´s gonna be something else, I´d love if you could come to the show and show us support by dancing and shouting! Love and respect, Mugison.
-
RAGGA GRÖNDALIcelandic vocalist, songwriter and pianist. Musical genre: Folk, pop, jazz, experimental.
-
Sigga BeinteinsA performer joining the music group for the event.
-
Sigríður Thorlacius
Sigríður Thorlacius is a singer and musician known for her Christmas music performances.
-
Stefán HilmarsCelebrating a significant anniversary in a career spanning forty years.
-
Ari EldjárnStand-up comedian
-
Fostbraedur Men's choir - Nordurljos HallGuest choir participating in the concert.
-
Þóris ÚlfarssonHljómsveit undir stjórn
-
Jon Elvar Hafsteinssongítarleikari
-
Ómar Guðjónsson (IS)
Guitarist in Jónas Sig's band.
-
Kristján Gíslason
Söngvari.
-
Íris LindBakraddir
-
Gunnar Helgason
Popular children's book author and performer.