Hönnun og smíði reiðhjóla fyrir íslenska hálendið með Steve McGuire

Hönnun og smíði reiðhjóla fyrir íslenska hálendið með Steve McGuire

RVK Brewing Co. - Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavík Directions

Sun 19.07.2026 15:00

Hvernig hannar maður hjól sem ræður við íslenskar ár og endalausar hálendisslóðir?

Bandaríski hjólasmiðurinn, hönnuðurinn og Íslandsvinurinn Steve McGuire heimsækir RVK Tónabíó áður en hann leggur af stað í sína þriðju hjólaferð yfir íslenska hálendið. Steve er stofnandi hins virta Handmade Bicycle Program við Háskólann í Iowa og hefur hannað og smíðað sérhæfð leiðangurshjól sem hafa hlotið alþjóðleg verðlaun.

Í þessari einstöku kynningu segir hann frá því hvernig list, verkfræði og ævintýraþrá mætast í hjólasmíði og hvers vegna Ísland hefur orðið hans stærsti innblástur.

Við fáum meðal annars að heyra um:

Hvernig leiðangurshjól eru hönnuð fyrir íslenskar aðstæður.

Handsmíði hjóla; hvernig list og verkfræði vinna saman.

Ævintýri Steve á íslensku hálendi og og verkefnin fram undan.

Viðburðurinn hentar öllum sem hafa áhuga á hjólreiðum, útivist, hönnun, handverki eða einfaldlega góðum sögum frá íslenskum óbyggðum.

Að lokinni kynningu verður opnað á spurningar.

Barinn verður að sjálfsögðu opinn og hægt verður að kaupa brakandi ferskan handverksbjór frá RVK Bruggfélagi og auk þess áfengislausa drykki í úrvali.

Aðgangur er ókeypis. Frjáls framlög renna óskipt til Landsbjargar.

Performers