Ingimar Eydal 90 ára
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Sun 18.10.2026 16:00
Hljómsveit Ingimars Eydal var um árabil ein vinsælasta danshljómsveit landsins auk þess að gefa út hljómplötur sem báru hróður hljómsveitarinnar langt út fyrir bækistöðvar hljómsveitarinnar á Akureyri. Spilagleði og vandvirkni einkenndi hljómsveitina og frábærir söngvarar voru ávallt í framlínunni á meðan hún starfaði. Þar má nefna Vilhjálm Vilhjálmsson, Þorvald Halldórsson, Bjarka Tryggvason, Helenu Eyjólfsdóttur, Ingu Eydal og Grím Sigurðsson sem dæmi. Auk þess skal sérstaklega nefna Finn Eydal en klarinett- og saxófónleikur hans vakti verðskuldaða athygli. Bræðurnir Eydal höfðu áður starfað saman í hinum vinsæla Atlantic kvartett sem gaf út hljómplötur sem nutu vinsælda.
Söngvararnir Sigríður Beinteinsdóttir, Stefán Hilmarsson, Matthías Matthíasson og Bjarni Arason flytja þekktustu lögin úr lagasafni Ingimars Eydal og félaga og má þar nefna: Í sól og sumaryl, Magga, Sumarást, Vor í Vaglaskógi, Á sjó og Hún er svo sæt sem dæmi. Með þeim leikur frábær hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafssonar.
Sérstakir gestir eru fyrrum söngvarar hljómsveitarinnar þau Inga Eydal og Grímur Sigurðsson.
Ingimar Eydal var vinsæll tónlistarmaður og kennari og er nafn hans oftar en ekki tengt við skemmtistaðinn Sjallann á Akureyri en þar spilaði hljómsveit hans árum saman. Hljómsveitin var einnig dugleg að skemmta Íslendingum í sólarlöndum og þaðan rötuðu ýmis lög á plötur eins og María Ísabel og Viva Espana.
Kynnir er Jónatan Garðarsson.
Performers
-
Jónatan GarðarssonLeiðsögumaður
-
Grímur Sigurðsson
Einsöngvari
-
Hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafssonar
A band performing ABBA songs
-
Sigga BeinteinsA performer joining the music group for the event.
-
Stefán HilmarsCelebrating a significant anniversary in a career spanning forty years.
-
Bjarni Ara
Performance by Bjarni Arason
-
Ingimar EydalBassi
-
Jón Ólafs
Music
-
Matthías MatthíassonMatti Matt also known as Matthías Matthíasson is an accomplished artist from Iceland. Matti has performed in musicals such as Hair and Jesus Christ, where he played Peter and was nominated for an Icelandic Music Award for "Best Newcomer" in 1995 for his acting in Jesus Christ Superstar. In 1996, he was recruited by athlete Magnus Scheving to be the singing voice of Sportacus (Icelandic: Íþróttaálfurinn) in the original Icelandic LazyTown plays, Áfram Latibær! and Glanni Glæpur í Latabæ. Matthías continued this role in the LazyTown television series, where he sang Sportacus' vocals in both the English and Icelandic dubs. In 1997, his band at the time, Dúndurfréttir, was praised by Rolling Stone as "the best Pink Floyd, Led Zeppelin cover band ever". In 2010, he progressed to the semi-finals in the selection of the Icelandic Eurovision. In 2011, he became the lead vocalist of the tribute band Sjonni's Friends, the band which represented Iceland in the Eurovision Song Contest 2011, where they performed the song "Coming Home”. Matti is like a gift that keeps on giving with his multitalented vocals and range of emotions displayed through his music.