Foreldranámskeið
Sveinatunga, Garðatorg 7, 210 Garðabær Directions
Tue Sep 15 2026 19:30
Fræðslu- og frístundasvið og velferðarsvið Garðabæjar bjóða upp á foreldranámskeið fyrir þau sem vilja auka færni sína til að takast á við uppeldishlutverkið.
💚 Á námskeiðinu munu reynslumiklir uppeldisráðgjafar gefa gagnleg ráð og kenna aðferðir til að draga úr vægum hegðunarvanda, auka samstarfsvilja og ýta undir færni barnsins til að takast á við daglegt líf.
Boðið verður upp á notalega kvöldstund þar sem foreldrum gefst tækifæri til þess að auka færni sína og læra
nýjar uppeldisaðferðir.
⏱️Námskeiðið er um tvær klukkustundir og er haldið þriðjudaginn
15. september klukkan 19:30 - 22:00 í Sveinatungu á Garðatorgi.
Þátttökugjald er 2.500 kr. fyrir fjölskyldu, greiðsluseðill verður sendur út við skráningu.
🔗 Skráning hér: https://forms.cloud.microsoft/Pages/ResponsePage.aspx?id=j-AxtPZKBUCvbTNwBmjaRVvIrltYMLZBjYLgLrgEySZURVFONURWTkJOVUtKT1NHN0xDNEoyQUtVUS4u&origin=QRCode