Garðabíó -Sunnudagsbíó í Tónlistarskóla Garðabæjar
Music school Garðabær, Kirkjulundur 11, 210 Garðabær Directions
Sun Oct 11 2026 19:30
Sögufélag Garðabæjar í samstarfi við Menningu í Garðabæ býður til sannkallaðrar nostalgíustundar í Tónlistarskólanum í Garðabæ, sunnudagskvöldið 11. október.
Sýndar verða tvær einstakar heimildarmyndir um Garðabæ:
Garðahreppur 1974 og
Garðabær - Bær í blóma frá árinu 1993
Í myndunum birtast hrífandi og ógleymanlegar litmyndir úr sögu bæjarins; mannlífið, umhverfið og samfélagið einsog það var á ólíkum tímum.
Að sýningum loknum munu skemmtilegir viðmælendur setjast í pallborð og ræða þróun Garðabæjar frá ýmsum hliður- hvernig bærinn hefur breyst, vaxið og þróast í gegnum árin.
Boðið verður upp á léttar veitingar í hléi.
Garðbæingar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fjölmenna og eiga saman skemmtilega kvöldstund þar sem fortíð Garðabæjar lifnar við á ný. Viðburðurinn er á vegum Sögufélags Garðabæjar í samstarfi við Menningu í Garðabæ og er liður í hátíðarhöldum í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar.
Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.