GH Gypsy tríó ásamt Paulus Schäfer - Múlinn Jazzklúbbur

GH Gypsy tríó ásamt Paulus Schäfer - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa | Björtuloft, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions

Wed Sep 30 2026 20:00

Paulus Schäfer - gítar
Gunnar Hilmarsson - gítar
Jóhann Guðmundsson - gítar
Leifur Gunnarsson - bassi
Dan Cassidy - fiðla

Á tónleikunum kemur fram gypsy jazz tríó gítarleikarans Gunnars Hilmarssonar sem hefur verið leiðandi í þeirri stefnu hérlendis undanfarin ár. Að þessu sinni fær tríóið til sín frábæran gest, Paulus Schäfer sem er einn fremsti gypsy jazz gítarleikari í heimum í dag. Hann hefur spilað með mörgum frábærum listamönnum á borð við Stochelo Rosenberg, Bireli Lagrene, Peter Beets, Jan Akkerman, Antoine Boyer og Martin Taylor. Sérstakur gerstur á þessum tónleikum verður fiðluleikarinn góðkunni Dan Cassidy.