Guðsþjónusta á Mörk

Guðsþjónusta á Mörk

Grensáskirkja church, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík Directions

Sun Sep 13 2026 14:00

Guðsþjónusta fer fram á hjúkrunarheimilinu Mörkinni sunnudaginn 13. september kl. 14:00. 
Kristín Waage organisti leikur á píanó og leiðir tónlist og söng. 
Séra Sigríður Kristín Helgadóttir prédikar og þjónar fyrir altari. 
Prestar Fossvogsprestakalls annast um mánaðarlegar guðsþjónustur á Mörkinni í samstarfi við starfsfólk og stjórnendur Markar. 
Verið hjartanlega velkomin í guðsþjónustu á hjúkrunarheimilinu Mörk. 

Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkurt og kona að nafni Marta bauð honum heim. Hún átti systur er María hét og settist hún við fætur Drottins og hlýddi á orð hans. En Marta lagði allan hug á að veita sem mesta þjónustu. Og hún gekk til hans og mælti: „Drottinn, hirðir þú eigi um það að systir mín lætur mig eina um að þjóna gestum? Seg þú henni að hjálpa mér.“
En Drottinn svaraði henni: „Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið.“ (Lúk. 10:38-42)