Guðsþjónusta í Grensáskirkju

Guðsþjónusta í Grensáskirkju

Grensáskirkja church, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík Directions

Sun Sep 13 2026 11:00

Sunnudaginn 13. september er guðsþjónusta kl. 11 í Grensáskirkju.  

Ásta Haraldsdóttir organisti og söngkonur frá Domus Vox undir stjórn Margrétar Pálmadóttur leiða söfnuðinn í söng og syngja fyrir viðstadda.  Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. 

Heitt er á könnunni fyrir og eftir guðsþjónustuna. 

Verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju.

Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkurt og kona að nafni Marta bauð honum heim. Hún átti systur er María hét og settist hún við fætur Drottins og hlýddi á orð hans. En Marta lagði allan hug á að veita sem mesta þjónustu. Og hún gekk til hans og mælti: „Drottinn, hirðir þú eigi um það að systir mín lætur mig eina um að þjóna gestum? Seg þú henni að hjálpa mér.“
En Drottinn svaraði henni: „Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið.“ (Lúk.10:38-42)