Hærri skattar, töpuð tækifæri?

Hærri skattar, töpuð tækifæri?

Smárabíó, Hagasmári 1, 201 Kópavogur Directions

Mon Sep 14 2026 09:00

Hærri skattar, töpuð tækifæri? er yfirskrift viðburðar sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu standa fyrir þann 14. september næstkomandi.

Skráning hér: https://www.sff.is/vidburdir/haerri-skattar-topud-taekifaeri

Hvar stendur íslenskt fjármögnunarumhverfi og í hvaða átt stefnir það? Hvaða áhrif hafa skattar, regluverk og aðgerðir stjórnvalda í þeim efnum? Hvar liggja framtíðartækifærin til að fjármagna íslenskt atvinnulíf í átt til bættra lífskjara? Hversu mikil áhrif hefur fyrirsjáanleiki í skattlagningu og reglusetningu á samkeppnishæfni Íslands? Þessum spurningum og mörgum fleiri verður velt upp á ráðstefnunni auk þess að fjallað verður um skatta á íslenska banka í alþjóðlegum samanburði.

Fyrirlesarar á fundinum eru eftirfarandi:

• Lars Christensen, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Ipace.

• Lev Ratnoski, hagfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

• Dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og stofnandi Intellecon.

• Reynir Stefán Gylfason, endurskoðandi og meðeigandi KPMG.

Þar að auki verða pallborðsumræður á fundinum þar sem lykilfólk úr íslensku atvinnulífi og stjórnmálum mun fara yfir stöðuna.

Fundarstjóri verður Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.

Fundurinn hefst kl. 9 í Smárabíói, mánudaginn 14. september. Húsið opnar kl. 8:30. Viðburðurinn er öllum opinn en skráning er nauðsynleg hér: https://www.sff.is/vidburdir/haerri-skattar-topud-taekifaeri