HEIMA-SKAGI 2026
Akranes, Akranes, Akranes Directions
Sat Oct 31 2026 18:00
HEIMA-SKAGI 2026
Akranes - 31. Október (laugardagur)
Þau sem koma fram á HEIMA-SKAGA hátíðinni í ár eru:
Sveitin (Akranes)
Sú Ellen
Krummi
Jónas Sig
Jaðrakan (Akranes)
Ísak Breki
Á Móti Sól
Ferlegheit (Akranes)
Soffía Björg
Klara Einars
Marius Ziska (Færeyjar)
Blood Harmony
Kristmundur Axel
Teitur Magnússon
Dóra og Döðlurnar
Karolína Orradóttir
Rock Paper Sisters
MIÐAHAFAR FÁ AFHENT ARMBÖND og prentaða dagskrá í gamla Arnardal (Kirkjubraut 48) á hátíðardag frá 13.00 – 17.00
HEIMA-SKAGI er tónlistarhátíð sem haldin er í tengslum við menningarhátíð Skagamanna - Vökudaga sem standa frá 22. október til 1. nóvember í ár.
Á HEIMA-SKAGA hátíðinni sem fer fram laugardaginn 31. október koma fram 17 listamenn/hljómsveitir/atriði sem spila flest tvisvar sinnum flestir í 11 mismunandi húsum. Eitt kvöld, 34 tónleikar í það heila í 12 húsum og allt gerist þetta í miðbænum/niðurskaganum á Akranesi.
HEIMA-SKAGI leggur áherslu á fjölbreytta músík – Popp -rokk – rapp – jazz – soul – folk – heimstónlist - klassík - og í raun hvað sem er, ef það er áhugavert og skemmtilegt.
HEIMA-SKAGI hlaut við setningu Vökudaga í ár Menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2026.
„Frá því hátíðin var fyrst haldin árið 2019 hefur HEIMA-SKAGI fest sig í sessi sem einn af eftirtektarverðustu tónlistarviðburðum bæjarins. Hátíðin hefur vaxið jafnt og þétt og orðið ómissandi hluti af Vökudögum, þar sem hún laðar að sér tónlistaráhugafólk nær og fjær og auðgar menningar- og mannlíf bæjarins“ sagði í fréttatilkyningu frá Akraneskaupstað.
https://www.akranes.is/is/frettir/category/1/heima-skagi-hlytur-menningarverdlaun-akraneskaupstadar-2026
Það er spilað í HEIMA-húsum Skagafólks á HEIMA-SKAGA;
Skólabraut 20 (Guðni og Lilja)
Vesturgata 45 (Kristján og Margrét)
Vesturgata 32 (Haraldarhús)
Vesturgata 40 (Fúsi og Gréta)
Melteigur 4 (Sæmundur og Margrét)
Grundartún 8 (Elfa og Pálmi)
Stærsta breytingin frá því í fyrra er að upphaf og endir HEIMA-SKAGA mun fara fram í einu af húsum fyrirtækisins KAPP (Skaginn) sem er aðal-styrktaraðili hátíðarinnar. Í KAPP verður hátíðin sett með formlegum hætti og henni verður líka slitið þar með skemmtilegum lokatónleikum þegar dagskránni í HEIMA-húsunum er allri lokið. Í KAPP munu spila 5 hljómsveitir/atriði í það heila á HEIMA-SKAGA ár og í KAPP verður AÐAL-svið hátíðarinnar.
En það verður líka spilað í versluninni NÍNU (Kirkjubraut 12) og nýju garnbúðinni Garníkó (Kirkjubraut 10), Galleríi Bjarna Þórs Kirkjubraut 1 og í gamla ArnArdAl (Kirkjubraut 48) eins og í fyrra. Þar verða armböndin líka afhent á hátíðardag frá kl. 13.00-17.00 og þar verður ýmislegt skemmtilegt í gangi – matur, myndlist ofl.
HEIMA-SKAGI er einstök hátíð þar sem nándin við listafólkið er mjög mikil. Fyrsta HEIMA-SKAGA hátíðin var haldin 2019 með sex atriðum og það hefur alltaf selst upp.
Sveitin – sem er gamla Skólahljómsveit Akraness – 30 manna lúðrasveit undir stjórn Andrésar Helgasonar mun opna hátíðina kl. 18.00 í KAPP. Það er mögulegt að gestur eða tveir muni syngja með Sveitinni.
Dagskráin í HEIMA-húsunum hefst svo kl. 19.00 og stendur til 22.45.
Lokatónleikar HEIMA-SKAGA í ár eru með hljómsveitinni Á Móti Sól! Þeir hefjast í KAPP stundvíslega kl. 23.00.
HEIMA-SKAGI er tónlistarhátíð með 17 hljómsveitum/atriðum sem stendur yfir í 6 klukkustundir.
Það er stutt á Akranes úr Reykjavík til dæmis og allir velkomnir.