Hittumst á safninu og spjöllum saman um daginn og veginn!

Hittumst á safninu og spjöllum saman um daginn og veginn!

Mon Oct 05 2026 00:00

Hefur þig einhvern tíma langað að spjalla við ókunnugan, en vissir ekki alveg hvernig á að byrja?

Spjallborð eru nýstárleg lausn sem er hönnuð til að hvetja til félagslegra samskipta og draga úr einmanaleika í samfélaginu. Spjallborðum er ætlað að vera aðgengileg öllum, óháð aldri eða aðstæðum, og bjóða upp á lágan þröskuld til samskipta. Þau skapa þannig vinalegt og opið rými þar sem fólk getur auðveldlega tengst og átt notaleg samtöl.

Spjallborðin verða sett upp á öllum 8 söfnum Borgarbókasafnsins í Viku einmanaleikans 2. – 9. október og verða aðgengileg á opnunartíma safnanna.

Öll hjartanlega velkomin!