Hljómsveitin Umbra - Tónlistarnæring
Music school Garðabær, Kirkjulundur 11, 210 Garðabær Directions
Wed Oct 07 2026 12:15
Tónlistarnæringu októbermánaðar veitir okkur hljómsveitin Umbra sem kafar ofan í sagnaarf og ljóð fyrri alda og flytur fjölbreytta dagskrá þjóðlaga samhliða nýju efni við aldagamlan kveðskap.
Hljómsveitin hyggst meðal annars reiða fram ný lög úr eigin ranni við veraldlegan og trúarlegan kveðskap Hallgríms Péturssonar, eins ástsælasta skálds Íslandssögunnar, en hljómsveitin stefnir að hljóðritun laganna í október. Veraldlegu ljóð Hallgríms veita okkur einstaka innsýn í viðburðaríka ævi og tíðaranda og heimsmynd sautjándu aldar.
Hljómsveitin Umbra hefur hlotið lof gagnrýnenda fyrir einstakan hljóm og ferskar útsetningar á þjóðlagatónlist. Hljómsveitin var stofnuð árið 2014 af fjórum tónlistarkonum og sameinar íslenska þjóðlagatónlist, miðaldatónlist og frumsamdar tónsmíðar í tilfinningaríkum, vandlega útfærðum flutningi. Hópurinn hefur komið fram á fjölmörgum hátíðum í Evrópu og Asíu og gefið út fimm plötur. Platan Solstitium frá 2018 var valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Meðlimir Umbru eru:
Alexandra Kjeld kontrabassi
Arngerður María Árnadóttir harpa
Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir fiðla
Lilja Dögg Gunnarsdóttir söngur
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin