Huldur og YOIK
Laugarneskirkja, Við Kirkjuteigur, 105 Reykjavík Directions
Fri Oct 23 2026 18:00
Huldur og Kammerkórinn YOIK frá Hollandi halda sameiginlega tónleika í Laugarneskirkju föstudaginn 23.október.
Kammerkórinn Huldur var stofnaður haustið 2021. Á skammri ævi hefur kórinn haldið fjölda tónleika og frumflutt hátt í fimmtíu ný íslensk kórverk. Hann hefur einnig verið dýrmætur vettvangur fyrir ungt fólk til að spreyta sig á tónsmíðum, ljóðagerð, einsöng og kórstjórn. Huldur dregur nafn sitt frá kynjaveru úr íslenskri þjóðtrú sem hefur verið yrkisefni margra skálda í gegnum tíðina.
Kamerkoor YOIK er hollenskur ungmennakór sem er stjórnað af Raoul Boesten. 10 ára afmælisverkefnið þeirra, Aurora, er efnisskrá sem byggist á norrænni kórtónlist. Verkefnið kannar þjóðsögur, náttúru og menningu í gegnum söng.
Aðgangseyrir er 2500 krónur.
Hlökkum til að syngja fyrir ykkur!