Ísmús í aldarfjórðung: stefnumót fræða, lista og almennings

Ísmús í aldarfjórðung: stefnumót fræða, lista og almennings

Edda, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík Directions

Sat Oct 03 2026 14:00

Í tilefni af því að vefurinn Ísmús á 25 ára afmæli í ár heldur Árnastofnun í samstarfi við Félag þjóðfræðinga á Íslandi málþing í Eddu laugardaginn 3. október. Þar munu stíga á stokk fræðafólk, tónlistarfólk, kennarar og fleiri sem hafa komið að uppbyggingu vefsins eða nýtt hann í störfum sínum og sköpun.

Vefurinn Ísmús er samstarfsverkefni Árnastofnunar, Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Tónlistarsafns Íslands. Þar má finna upplýsingar um tónlistarsögu Íslands og upptökur úr þjóðfræðisafni Árnastofnunar. Auk þess er Ísmús heimili fyrir gagnagrunnana Sagnagrunn, Ævintýragrunn og óðfræðivefinn Braga.

Í lok málþingsins verður efnt til afmælisveislu með tónlistaratriði.

Dagskrá

14–14.50

Jón Hrólfur Sigurjónsson

Tónlistarsafn Íslands

Terry Gunnell

Sagnagrunnur

Hlé

15.05–16

Þóra Marteinsdóttir, tónmennta- og tónfræðikennari, kórstjóri og tónskáld, Kársnesskóli

Pétur Grétarsson, útvarpsmaður og slagverksleikari

Júlíana Þóra Magnúsdóttir þjóðfræðingur

Þorgerður E. Sigurðardóttir dagskrárgerðarmaður, Rás 1

Dagrún Ósk Jónsdóttir og Jón Jónsson þjóðfræðingar, Rannsóknasetur HÍ á Ströndum