Jaakko Laitinen & Väärä Raha í Leyni

Jaakko Laitinen & Väärä Raha í Leyni

Leyni, Hafnarstræti 95, 600 Akureyri Directions

Fri Nov 06 2026 20:00

Finnlandsvinir og aðdáendur balkantónlistar í Eyjafirði (það gríðarstóra sniðmengi) geta glaðst heiftarlega föstudagskvöldið 6. nóvember næstkomandi, því þá mun finnska hljómsveitin Jaakko Laitinen & Väärä Raha leika listir sínar í Leyni á Akureyri.

Jaakko Laitinen og vinir hans hafa síðan 2009 heillað áhorfendur vítt og breitt um Evrópu og eiga mikilli velgengni að fagna í heimalandinu og eins og allir vita kemur gott eitt frá Finnlandi.

Það er vinur Jaakko, Svavar Knútur, sem dregur þetta fríða föruneyti á skerið og mun hann, fyrir þrábeiðni Jaakkos, taka nokkur lög til upphitunar.

Kvöldið verður þó nær algerlega í höndum hinna dásamlegu Finna sem hafa marinerað sál sína í balkneskum spíra sem eimaður var í gömlum Trabant.

Aðgangseyrir inn á tónleikana er litlar 4.000 krónur.