Jaakko Laitinen & Väärä Raha í Tehúsinu

Jaakko Laitinen & Väärä Raha í Tehúsinu

Teahouse, Kaupvangur 17, 700 Egilsstaðir Directions

Thu Nov 05 2026 20:00

Jaakko Laitinen & Väärä Raha í Tehúsinu

Finnlandsvinir og aðdáendur balkantónlistar á Héraði (það gríðarstóra sniðmengi) geta glaðst heiftarlega fimmtudagskvöldið 5. nóvember næstkomandi, því þá mun finnska hljómsveitin Jaakko Laitinen & Väärä Raha koma í sína fyrstu tónleikaferð til Íslands og leika og syngja í Tehúsinu af öllum stöðum!

Jaakko Laitinen og vinir hans hafa síðan 2009 heillað áhorfendur vítt og breitt um Evrópu og eiga mikilli velgengni að fagna í heimalandinu og eins og allir vita kemur gott eitt frá Finnlandi.

Það er vinur Jaakko, Svavar Knútur, sem dregur þetta fríða föruneyti á skerið og mun hann, fyrir þrábeiðni Jaakkos, taka nokkur lög til upphitunar.

Kvöldið verður þó nær algerlega í höndum hinna dásamlegu Finna sem hafa marinerað sál sína í balkneskum spíra sem eimaður var í gömlum Trabant.

Aðgangseyrir inn á tónleikana er litlar 4.000 krónur.