Jólabærinn Hafnarfjörður

Jólabærinn Hafnarfjörður

Hafnarfjörður Library, Strandgata 1, 220 Hafnarfjörður Directions

Fri Sep 18 2026 09:00

Jólabærinn Hafnarfjörður

Undirbúnings- & upplýsingafundur

Föstudaginn 18. september

Nýja bókasafni Hafnarfjarðar í Firði, 2.hæð | kl.09:00 - 10:30

Hafnarfjörður breytist í sannkallaðan jólabæ í aðdraganda jóla sem laðar að sér fjölda gesta. Hafnarfjarðarbær hefur umsjón með Jólaþorpinu og efnir því Markaðsstofan til fundar með bænum og Sunnu Magnúsdóttur, verkefnastjóra jólaþorpsins.

Fundurinn verður haldinn í Friðrikssal á 2. hæð í nýju Bókasafni Hafnarfjarðar, í Firði. Boðið verður upp á léttan morgunverð, verkefnastjóri Jólaþorpsins verður með stutta kynningu varðandi dagskrá, fyrirkomulag og undirbúning og að henni lokinni gefst tækifæri til almenns spjalls og samráðs.

Við hvetjum öll fyrirtæki til að taka þátt í jólabænum og mæta á fundinn, þá sérstaklega fyrirtækin í miðbænum.

(ath. öll velkomin á fundinn, ekki eingöngu fyrir fyrirtæki í MSH)

Hlökkum til að sjá sem flest