Jólaframtíðir. Árið er 3026
Thu Dec 10 2026 12:10
Ekki missa af þessum viðburði
Gunnar Helgason gefur út bók sem gerist eftir eitt þúsund ár á Íslandi og bæði á og við Norðursjó.
Hann þurfti að fara í mikla rannsóknarvinnu við samningu bókarinnar til að heimsmyndin yrði trúverðug.
Hvar er Reykjavík? Af hverju eru Færeyjar helvíti á jörðu? Hvaða nútíma fyrirbæri eru ómetanlegir fornmunir framtíðarinnar?
Niðurstaðan gefur ekki ástæðu til bjartsýni en kemur kannski líka örlítið á óvart.
Vefslóðin á fundinn
https://teams.microsoft.com/meet/3381852052705677?p=Ms7RIgFcXinxBcZp47
Gunnar Helgason er margverðlaunaður barnabókahöfundur og hefur gefið út 31 bók á Íslandi og erlendis auk þess að hafa skemmt börnum í sjónvarpi, á sviði og í kvikmyndum í tugi ára.